02/05/2024

Strandamenn stunda námskeið af kappi

Í fréttatilkynningu frá Fræðslumiðstöð Vestfjarða kemur fram að miðstöðin hélt 85 námskeið á árinu 2007 (67 árið 2006) í 126 nemendahópum (88 árið 2006). Samanlagður fjöldi þátttakenda var 1361, en 943 árið áður. Konur voru í miklum meirihluta þátttakenda á námskeiðum eða um 80% og hefur hlutfall þeirra aldrei verið jafn hátt. Af einstaka stöðum var samanlagður fjöldi nemenda mestur á Hólmavík, samtals 400. Á Ísafirði voru þeir rúm 300 og tæp 300 í Bolungarvík.

Aðalfundur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða fyrir árið 2008, var haldinn fimmtudaginn 17. apríl 2008. Var þar gerð grein fyrir rekstri ársins 2007 og samþykkt starfsáætlun fyrir árið 2007. Fræðslumiðstöðin hefur verið mjög áberandi í námskeiðahaldi á Vestfjörðum og Ströndum síðustu ár og sinnir símenntun og endurmenntun utan hins formlega skólakerfis. Hún er til húsa að Suðurgötu 12 á Ísafirði, á sama stað og  Háskólasetur Vestfjarða. Stofnanirnar sinna hvor sínu menntastiginu og eru í mjög  góðu samstarfi.

Á árinu 2007 varð veruleg aukning á starfsemi Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Heildarvelta miðstöðvarinnar var 49 milljónir króna, samanborið við 29 milljónir árið 2006. Afkoma Fræðslumiðstöðvarinnar var góð á árinu 2007 og því ákvað aðalfundur að blása til ennfrekari sóknar.
 
Fræðslumiðstöðin hefur ráðið Maríu Ragnarsdóttur B.Ed. til starfa í Vesturbyggð og Tálknafirði og hefur hún aðsetur í Þróunarsetri Vestur-Barðastrandarsýslu. Þá hefur miðstöðin ákveðið að ráða Kristínu Sigurrósu Einarsdóttur B.Ed. í hálft starf á Ströndum og er hún til húsa í hinu nýja þróunarsetri á Hólmavík að Höfðagötu 3. Á Ísafirði mun jafnframt verða fjölgað starfsfólki, einkum með því að ráða fólk í föst störf í stað verktakavinnu.

Helstu verkefni sem Fræðslumiðstöð Vestfjarða sinnir auk hefðbundinna námskeiða, eru náms- og starfsráðgjöf og greining fræðsluþarfa innan fyrirtækja og stofnana.

Af þróunarverkefnum má nefna Atvinnuíslenska, sem er tal- og vefsetningu á námsefni í íslensku fyrir útlendinga, Efling fjarkennslu og Fræðsluhönnun í heimabyggð.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er sjálfseignarstofnun sem 9 aðilar standa að. Eru það fyrirtæki og stofnanir sem starfa á fjórðungsvísu. Fræðslumiðstöðin er aðili að Kvasi, samtökum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni og Leikn, heildarsamtökum fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi.