20/04/2024

Spurningakeppni í kvöld

Félagsheimilið á Hólmavík í sumarskrúðaFyrsta keppniskvöldið í Spurningakeppni Strandamanna fer fram í kvöld í félagsheimilinu á Hólmavík. Hefst skemmtunin kl. 20:00. Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna, en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Að sjálfsögðu er tekið á móti greiðslukortum. Sælgæti, öl og kaffi verður selt á staðnum. Fjórar skemmtilegar viðureignir fara fram í keppninni í kvöld.

Liðin sem keppa í kvöld eru:

  • Snerpa – Sparisjóður Strandamanna
  • Félag eldri borgara – Bitrungar
  • Strandagaldur – Strandahestar
  • Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur – Hólmadrangur

Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir spurningakeppninni. Spyrill og dómari verður Kristín S. Einarsdóttir, kennari við Grunnskóla Hólmavíkur.