29/04/2024

Héraðsmót í skíðagöngu

640-skidi4

Héraðssamband Strandamanna heldur héraðsmót í skíðagöngu á morgun sunnudaginn 5. febrúar í Selárdal og hefst mótið kl. 14:00. Keppt verður í göngu þar sem fyrst er genginn 1 hringur með hefðbundinni aðferð, skipt um skíði og annar hringur genginn með frjálsri aðferð. Ekki er skylda að skipta um skíði, heldur má ganga á sömu alla leið. Keppt er í öllum flokkum og vegalengdir eru þær sömu og í skíðafélagsmótum. Karlar 17 ára og eldri ganga 5+5 km og konur 2,5+2,5 km. Verðlaun verða veitt að göngu lokinni. Mótið er öllum opið.