26/04/2024

Sparisjóður Strandamanna á næsta súpufundi

Sparisjóður Strandamanna verður umfjöllunarefni á næsta súpufundi
Þróunarsetursins á Hólmavík og Arnkötlu 2008 n.k. fimmtudag þann 2. apríl. Þá mun Guðmundur Björgvin
Magnússon sparisjóðsstjóri fara yfir sögu og starfsemi sparisjóðsins sem var
stofnaður árið 1891. Það eru fá fyrirtæki á landinu sem náð hafa þeim aldri.
Sparisjóður Strandamanna er sameinaður af tveimur sparisjóðum á Ströndum,
Sparisjóði Árneshrepps og Sparisjóði Kirkjubóls- og Fellshreppa sem var lengst
af með aðsetur á Kirkjubóli í Kirkjubólshreppi hinum forna. Sparisjóður
Strandamanna er með starfsstöðvar á tveimur stöðum á Ströndum, á Hólmavík og í
Norðurfirði í Árneshreppi.

Þetta verður ellefti súpufundurinn í vetur þar sem
fjallað er um atvinnu- og menningarmál á Ströndum og það eru allir hjartanlega
velkomnir. Súpufundirnir eru að venju á Café Riis á Hólmavík og standa frá kl.
12:00 til 13:00.