26/04/2024

Skíðamót og alþjóðlegur snjódagur

580-skemmtiferd-skidi2
Sunnudaginn 20. janúar verður hinn alþjóðlegi Snjór um víða veröld dagurinn haldinn hátíðlegur um heim allan og líka á Sröndum. Skíðafélag Strandamanna hvetur fólk til að fjölmenna á skíðasvæðið í Selárdal við Steingrímsfjörð þar sem dagskráin hefst kl. 13:00 með skíðagöngumóti með frjálsri aðferð þar sem keppt er í mörgum aldursflokkum og vegalengdum við hæfi hvers og eins. Að keppni lokinni eða um kl. 14:00 verður skíðadagur fjölskyldunnar haldinn í Selárdal, en þar eru fjölskyldur hvattar til að ganga saman á skíðum í Selárdal og njóta útiveru og hreyfingar. Einnig verður boðið upp á ókeypis tilsögn á skíðum fyrir þá sem það vilja. Á staðnum verða veitingar í boði Skíðafélagsins, heitt kakó og kökur.