29/03/2024

Skákmót í Árneshreppi 1.-2. júlí

Hrókurinn og Taflfélag Trékyllisvíkur standa fyrir skákmóti í Árneshreppi fyrstu helgina í júlí í sumar, dagana 1.-2. júlí, í félagsheimilinu í Trékyllisvík. Mótið er opið öllum og má senda skráningar í tölvupósti á guttesen@hrokurinn.is. Mótið hefst kl. 20:00, föstudagskvöldið 1. júlí og verða þá tefldar þrjár atskákir. Daginn eftir, 2. júlí, hefst taflmennskan kl. 10:00. Þá verða tefldar tvær atskákir til viðbótar. Í fjórum síðustu umferðunum verða tefldar hraðskákir með sjö mínútum í umhugsunartíma.


Um kvöldið verður hátíð í félagsheimilinu Árnesi, þar sem ýmsir listamenn koma fram. Dagskráin verður auglýst síðar. Heildar peningaverðlaun á mótinu verða 100.000 kr. Að auki verða bækur, geisladiskar, taflsett og fleiri vinningar frá vinum og samstarfsaðilum Hróksins. Þá verða sérstök verðlaun í flokki barna á grunnskólaaldri. Áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst og allir eru hjartanlega velkomnir.