02/05/2024

Samstarfsverkefni um lausn á vanda dreifbýlisverslana

Kaupfélag Steingrímsfjarðar á DrangsnesiSamstarfsverkefni milli Íslendinga og annarra norrænna þjóða sem felst í að
leita lausna á vanda dreifbýlisverslunar á norðurslóðum er í burðarliðnum.
Stefnt er að því að gerð verði greining á mismunandi tegundum smásöluverslana í
dreifbýli og fundnir þeir þættir sem mestu máli skipta um velgengni þeirra.
Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst stjórnar verkefninu en
mótun og undirbúningur þess var unninn í samstarfi við Byggðastofnun.

NORA, Norræna atlantssamstarfið, styrkir verkefnið auk þess sem
Norðurslóðaáætlunin, Northern Perephery Programme, hefur samþykkt að veita
verkefninu undirbúningsstyrk. Fyrsti hluti verkefnisins verður unninn á fjórum
mánuðum og felur í sér þarfagreiningu og fullmótaða verkáætlun fyrir
meginverkefnið. Í fyrsta áfanga verkefnisins taka þátt, auk Íslendinga; finnar,
norðmenn og færeyingar. Þá verður unnið að þáttöku fleiri þjóða og lögð sérstök
áhersla á þáttöku grænlendinga og skota. Gert er ráð fyrir að meginverkefnið
muni taka þrjú ár. Þeir aðilar sem koma að verkefninu frá þáttökuþjóðunum eru
háskólastofnanir, byggðaþróunarstofur líkt og Byggðastofnun og aðrir
sérfræðingar á sviði verslunar og byggðaþróunar. Þá verður unnið í nánu
samstarfi við verslanir, atvinnuþróunarfélög og aðra hagsmunaaðila á
svæðunum.
Öll lönd sem byggja Norðurslóðir eiga við það vandamál að stríða að
illa gengur að reka smásöluverslanir í fámennum byggðalögum. Verslanirnar eru
samt einn grunnþáttur þess að fólk geti búið í þessum byggðalögun. Mikil hætta
er á að þegar eina verslunin í litlu byggðalagi hættir starfsemi þá flytjist
þaðan íbúarnir. Þess vegna  verða stjórnvöld  að grípa til stuðningsaðgerða eða
annarra neyðarráðstafana til að halda versluninni gangandi. Á hinn bóginn er
ekki heldur viðunandi fyrir rekstraraðila verslana að reka fyrirtæki sitt með
tapi.
Verkefnið sem nú er að hefjast miðar að því að finna lausnir sem
gagnast öllum hlutaðeigandi; stjórnvöldum, verslunareigendum og íbúum staðanna.
Niðurstöðurnar verða nýttar í formi ráðgjafar og kennsluefnis í hverju
þáttökulandanna.