29/04/2024

Óvíst um opnun vegar um Arnkötludal í vetur

Vegamót við VestfjarðavegNú hefur verið unnið í nýjum vegi um Arnkötludal í rúmt ár og hefur vegagerðin fyrst og fremst verið unnin í Reykhólahreppi, en eftir er að leggja veginn um Arnkötludalinn. Verkinu á að vera að fullu lokið þann 1. september 2009, en útlögn á neðra burðarlagi á samkvæmt samningi að vera lokið 1. desember 2008 og frágangur þannig að hægt verði að heimila umferð um veginn þann vetur. Í fréttatilkynningu Samgönguráðuneytis í tengslum við undirritun samninga árið 2007 var sagt að verkinu yrði að mestu lokið fyrir árslok 2008, en lagningu slitlags ekki fyrr en sumarið 2009. 

Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is forvitnaðist á dögunum um gang mála hjá Vegagerðinni, hvort dagsetningar stæðust og hvernig yrði staðið að opnun vegarins. Í svari frá Gísla Eiríkssyni kemur fram að í gögnum er ákvæði þess efnis að Vegagerðin geti tekið veginn í notkun næstkomandi  vetur frá 1. desember til 1. apríl og þá verði ekið á neðra burðarlagi sem á að vera tilbúið 1. desember.

Hins vegar hefur samkvæmt svari Gísla ekki enn verið tekin ákvörðun innan Vegagerðarinnar um hvort vegurinn verði yfirleitt opnaður næsta vetur, þrátt fyrir þetta ákvæði, og ljóst að veginum verður lokað aftur um vorið á meðan unnið verður að verklokum. Óvíst er að sögn Gísla hvort skynsamlegt sé að opna veginn þegar á allt sé litið, meðal annars vegna kostnaðar, t.d. við merkingar, auk þess sem vegurinn geti ekki verið annað en vondur yfirferðar fyrir vegfarendur á neðra burðarlaginu. Ljóst má vera að þessi niðurstaða yrði mörgum heimamönnum mikil vonbrigði, ef vegurinn opnar ekki fyrr en seint næsta sumar.

Vegurinn um Arnkötludal liggur milli Djúpvegar nr. 61 í Steingrímsfirði og Vestfjarðavegar nr. 60 í Geiradal ekki langt frá Króksfjarðarnesi. Liggur vegurinn um Gautsdal og þaðan yfir í Arnkötludal að þjóðvegi nr. 61 við býlið Hrófá, rétt sunnan við Hólmavík. Vegurinn um Arnkötludal og Gautsdal verður 24,5 km langur og fer hæst í um 368 metra hæð yfir sjávarmáli við Þröskulda. Breidd vegarins verður 7,5 metrar.

Alls bárust 9 tilboð í verkið á sínum tíma og var tilboð Ingileifs Jónssonar ehf. það lægsta, 661,8 milljónir króna, sem er 76,5% af kostnaðaráætlun, en það hæsta 879,4 milljónir króna frá Ístaki. Var samið við Ingileif Jónsson í apríl 2007 og hófst vinna við vegagerðina skömmu síðar. Þrír undirverktakar taka þátt í verkinu. Fossvélar á Selfossi sjá um efnisvinnslu, Suðurverk um sprengingar og Borgarverk um klæðningu. Flýtiákvæði var sett í samninga um að verktaki fengi 20 milljónir í bónus ef búið yrði að ganga frá kæðningu á veginn haustið 2008, en útséð er um þetta og hefur líklega aldrei verið raunhæft.

Frá vegamótum við Vestfjarðaveg í apríl síðastliðnum – ljósm. Jón Jónsson