09/05/2024

Ótuktin í Bragganum

Á sunnudaginn kemur klukkan 20:00 verður einleikurinn Ótuktin sýndur í Bragganum á Hólmavík. Hér er á ferðinni magnað leikrit með söngvum sem enginn má missa af. Leikarinn er Katla Margrét Þorgeirsdóttir, en leikgerðina vann Valgeir Skagfjörð og spilar hann á hljóðfæri. Leikritið er byggt á bók Önnu Pálínu Árnadóttur og fjallar um glímuna við Kröbbu frænku. Verkið er fullt af bjartsýni, von og trú, en um leið
einlæg lýsing á baráttunni við óboðinn gest sem setur lífið  í uppnám.