29/04/2024

Ókeypis námskeið um styrkumsóknir

Jón Páll er í miðjunniTil að bregðast við ríkjandi efnahagsástandi hefur Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samráði við leiðbeinandann Jón Pál Hreinsson, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Vestfjarða, ákveðið að bjóða frítt námskeið í gerð styrkumsókna. Námskeiðið tekur þrjú kvöld og hefst í kvöld, mánudaginn 27. október kl. 20. Einnig verður kennt miðvikudagskvöld og föstudagskvöld, kl. 20-22. Kennt verður á Ísafirði og sent gegnum fjarfundabúnað í Grunnskólann á Hólmavík. Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur hæfari í að skrifa styrkumsóknir og auka þekkingu þeirra á þeim sjóðum sem hægt er að sækja styrki til.

Farið verður í gegnum hvernig á að skrifa umsóknir og hvað einkennir góðar styrkumsóknir. Gerð er grein fyrir hvernig umsóknir eru metnar í meginþáttum af þeim sem lesa, meta og ákvarða hverjir hljóta styrki. Umsóknarferlinu og umsóknarvinnunni má skipta niður í hluta og verður fjallað um hvernig ná má sem bestum árangri í hverjum hluta. Þá verður fjallað um helstu sjóði sem í boði eru á Íslandi og erlendis (norrænir og evrópuverkefni) og mismunandi áherslur milli þeirra. Loks verður umfjöllun um áfangaskýrslur og lokaskýrslur. 

Ennþá er hægt að skrá sig með því að senda Kristínu Einarsdóttur póst á stina@holmavik.is eða hafa samband í síma 8673164.