19/04/2024

Auglýst eftir sveitarstjóra í Strandabyggð


Starf sveitarstjóra í Strandabyggð hefur verið auglýst laust til umsóknar, en Ingibjörg Valgeirsdóttir sem hefur verið sveitarstjóri frá 2010 lætur af störfum í sumarlok. Í auglýsingu frá Strandabyggð kemur fram að leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að takast á við krefjandi verkefni. Umsóknarfrestur er til 11. júní og sér Hagvangur um ráðningarferlið fyrir sveitarstjórn Strandabyggðar.

Starfsvið sveitarstjóra:

  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
  • Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar
  • Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa
  • Að gæta hagsmuna Strandabyggðar út á við, vera talsmaður sveitarstjórnar og vinna að framfaramálum
  • Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum

Helstu kostir sveitarstjóra:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Áhugi á uppbyggingu samfélagsins, kynningarmálum, ímynd og stefnumótun
  • Reynsla af bókhaldi, stjórnun og rekstri
  • Þekking á sveitastjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

 Nánari upplýsingar: Rannveig Jóna Haraldsdóttir, rannveig@hagvangur.is
Umsóknarfrestur: Til og með 11.6.2012