26/04/2024

Námskeið um Svæðisþekkingu á Vestfjörðum

Í kvöld og annað kvöld, 19. og 20. maí, verður haldið námskeið í svæðisþekkingu fyrir Vestfirði á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Það stendur í tvo daga kl 18-22 og er ætlað öllum sem áhuga hafa á svæðis- og samfélagsþekkingu. Farið verður í samfélagsþætti, staðarþekkingu, upplýsingaleiðir og átthagafræði. Fjallað um náttúruna og söguna, vinsæla ferðamannastaði og fleira. Hægt er að bæta við þátttakendum, en skráning er í netfanginu stina@holmavik.is eða á www.frmst.is. Þeir nemendur sem staðsettir eru á Ströndum mæta í Þróunarsetrið á Hólmavík, en námskeiðið verður kennt á og frá fjórum stöðum á Vestfjörðum.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
· Hafi staðgóða samfélags- og staðarþekkingu
· Þekki helstu upplýsingarveitur um ferðaþjónustu og ferðamannastaði á Vestfjörðum
· Geri sér grein fyrir hvað er sérstakt og eftirsóknarvert á Vestfjörðum í heild og einkennum hvers svæðis fyrir sig (norðursvæði-suðursvæði-Strandir-Reykhólasveit)
· Þekki hvað felst í hugtakinu menningartengd ferðaþjónusta
· Kynnist helstu nýjungum í ferðaþjónustu

Kennslutími: Þriðjudag 19. maí og miðvikudag 20. maí kl 18-22.
Leiðbeinendur: Úlfar Thoroddsen, Sólrún Geirsdóttir, Björn Samúelsson, Jón Jónsson og Jón Páll Hreinsson.
Kennslustaður: Þróunarsetrið á Hólmavík. Kennt í fjarfundi á Hólmavík, Ísafirði og Patreksfirði og Reykhólum.
Verð: 2000.- kr fyrir hvort kvöld. Hægt er að taka annað kvöldið eða bæði.

Þriðjudagur 19. maí
Kl 18:00-19:20 Svæðisþekking Reykhólasveit – Björn Samúelsson
Kl 19:20-20:40 Svæðisþekking á norðurfjörðum – Sólrún Geirsdóttir
Kl 20:50-22:10 Svæðisþekking á suðurfjörðum – Úlfar Toroddsen

Miðvikudagur 20. maí
Kl 18:00-19:20 Nýjungar í ferðaþjónustu – Jón Páll Hreinsson
Kl 19:20-22:10 Svæðisþekking Strandir og almennt um Vestfirði – Jón Jónsson