26/04/2024

Móttökustaður Sorpsamlagsins opinn í dag

Sorppressan og EinarHólmvíkingar og nærsveitungar hafa margir byrjað að flokka rusl af miklum krafti eftir að Sorpsamlag Strandasýslu opnaði móttökustöð fyrir flokkaðan úrgang fyrr í desember. Þar eru mismunandi flokkar presssaðir í dýrindis ruslapressu og sendir í endurvinnslu. Aukaopnun verður í dag, 30. desember frá kl. 16:00-18:00, í móttökustöðinni á Skeiði 5 á Hólmavík. Fólk er hvatt til að láta sitt ekki eftir liggja við að flokka og skila en ætlunin er að minnka magn þess úrgangs sem urðaður verður á ruslahaugunum við Víðidalsá um 70%.