27/04/2024

Matartengd ferðaþjónusta – Nafnasamkeppni

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða ásamt aðilum frá ferðaþjónustu, verslun, veitingahúsum, framleiðendum og bændum hafa að undanförnu unnið að verkefni er snýr að matvælaframleiðslu í fjórðungnum og matartengdri ferðaþjónustu. Eitt af markmiðum verkefnisins er að gera vestfirsk matvæli sýnileg og aðgengileg og verður hannað vörumerki sem mun einkenna vestfiskar afurðir og verða notað í allri kynningu og markaðssetningu. Svipuð verkefnið hafa verið unnin á landinu og má þar nefna Matarkistuna Skagafjörður. Verkefnið vantar nú nafn og hefur þvi verið ákveðið að efna til nafnasamkeppni.

Nafnið þarf að hafa skírskotun til svæðisins og að sjálfsögðu til matar og mun það eins og áður segir vera notað í kynningarefni fyrir verkefnið og allri umræðu sem því fylgir. Hugmyndir skulu sendast á netfangið atvest@atvest.is eða í síma 450-3000 fyrir mánudaginn 8. desember.