26/04/2024

Margrét Eir, Hera Björk, Regína Ósk og Heiða Ólafs

Í kvöld eru stórtónleikar í Bragganum á Hólmavík sem enginn má missa af. Þar munu söngkonurnar Margrét Eir, Hera Björk, Regína Ósk og Heiða Ólafs syngja við undirleik Kjartans Valdimarssonar. Hefjast tónleikarnir kl. 20:00 og aðgangseyrir er 2.000.- kr. Flutt verður fjölbreytt prógramm og skemmst er frá því að segja að alltaf þegar þessi ágæti hópur hefur komið fram saman hefur verið fullt út úr dyrum og mikill fögnuður tónleikagesta. Strandamenn og nærsveitungar eru hvattir til að fjölmenna á gleðskapinn.