20/04/2024

Dívu-tónleikar í Hólmavíkurkirkju 1. júlí

Stórtónleikar verða í Hólmavíkurkirkju í kvöld, laugardaginn á Hamingjudögum á Hólmavík og hefjast kl. 20:00. Þar koma fram Þórhildur Örvars, Sigga Eyrún og Karl Olgeirsson á sannkölluðum Dívu tónleikum, en Kristjana Stefáns forfallaðist vegna veikinda. Þetta frábæra tónlistarfólk mun draga upp úr hatti sínum tónlist úr ýmsum áttum og leika öll sín uppáhaldslög. Þarna mun öllu æja saman, klassík, pop, jazz og mögulega fá nokkrir brandarar að fljóta með í bland. Allir ættu því að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Aðgangseyrir er 3.500 og frítt fyrir börn yngri en 16 ára