30/04/2024

Íbúafundur í tengslum við svæðisskipulag

645-sum4

Nefnd um gerð sameiginlegs svæðisskipulags fyrir sveitarfélögin Dalabyggð, Reykhólahrepp og Strandabyggð hefur auglýst opinn súpufund í Tjarnarlundi í Saurbæ, þriðjudaginn 26. apríl kl. 17:30-21:30. Nefndin hefur það hlutverk að móta stefnu um þróun svæðisins til framtíðar og sú stefna þarf að eiga fótfestu í reynslu íbúanna og sýn þeirra á svæðið, auðlindir þess og tækifæri. Á fundinum verður verkefnið kynnt og gefinn kostur á spurningum um það. Síðan verður unnið í hópum um ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu og aðra framleiðslu úr auðlindum svæðisins. Lögð verða fram gögn til að vinna út frá og spurt spurninga sem snúa að þróun vöru og þjónustu, nýtingu auðlinda, umgengni við náttúruna, uppbyggingu, mannvirkjagerð og samvinnu aðila.

Svæðisskipulagsnefnd hvetur alla sem hafa áhuga á framtíð svæðisins að koma á fundinn, kynna sér um hvað svæðisskipulagsverkefnið snýst, hitta nágranna og ræða möguleg tækifæri til að nýta auðlindir og sérkenni svæðisins til eflingar atvinnulífs og byggðar. Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Herborgu Árnadóttur hjá Alta á netfangið herborg@alta.is eða í síma 582 5000. Boðið verður upp á súpu. Sjá frekari upplýsingar á vefnum samtakamattur.is.