26/04/2024

Gagnvegur er að undirbúa útgáfu á jóladagatali

Dagskrár- og fréttablaðið Gagnvegur hyggst gefa út jóladagatal Strandamanna 2008 nú fyrir jólin. Dagatalið verður litprentað í stærðinni A3 og dreift á öll heimili og fyrirtæki í sýslunni ásamt söluskálum í nærliggjandi sveitum. Upplagið verður 400 eintök. Á dagatalinu verður einn reitur fyrir hvern dag desembermánaðar þar sem hægt verður að koma viðburðum eða opnunartímum á framfæri. Verið er að undirbúa hönnun dagatalsins. Í fréttatilkynningu kemur fram að nú er leitað til fyrirtækja, stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka að styðja við útgáfuna, en stefnt er að dreifingu 1. desember.

Lógó kostar 10.000 krónur en styrktarlína 5.000 krónur og upplýsingum um viðburði þarf að skila hið fyrsta þar sem undirbúningstíminn er naumur. Hægt er að panta í síma 867-3164 eða á netfanginu stina@holmavik.is.