06/05/2024

Hver hreppir menningarverðlaunin?

Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd Strandabyggðar auglýsir hér með eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar, en þau verða veitt á Hamingjudögum í sumar. Þetta er í annað skiptið sem verðlaunin eru veitt, en í fyrra fékk Tón- og grunnskólinn á Hólmavík þau fyrir uppsetningu á Grease. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum. Tilnefningum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið skrifstofa@strandabyggd.is