27/04/2024

Hrafn Jökuls les upp á Hólmavík

Hrafn Jökulsson mætir á Héraðsbókasafnið á Hólmavík í kvöld og les upp úr bók sinni: Þar sem vegurinn endar, en sögusvið hennar er að stórum hluta Árneshreppur á Ströndum. Upplesturinn fer fram á Héraðsbókasafni Strandasýslu í Grunnskólanum á Hólmavík í kvöld, þriðjudaginn 11. desember, klukkan 20:00. Hrafn verður með nokkur eintök af bókinni til sölu á safninu og hann mun einnig árita bækur. Boðið verður upp á kaffi og piparkökur.