02/05/2024

Héraðsbókasafnið opið í dag


Héraðsbókasafn Strandasýslu á Hólmavík verður opið í dag, laugardaginn 7. apríl, kl. 13:00 – 14:00. Er það eini opnunardagurinn sem eftir er fram til páska. Safnið opnar síðan aftur þriðjudaginn eftir páska og verður opið frá kl. 10:00 – 13:30 alla virka daga til vors og einnig á þriðjudagskvöldum frá kl. 19:30 – 20:30. Sumaropnun verður nánar auglýst síðar.

Á safninu er alltaf eitthvað nýtt að sjá og skoða. Til að mynda bættist fjöldi bóka við safnkostinn eftir bókamarkað í Perlunni á dögunum. Þá eru í hverri viku teknar upp fjölmargar bækur úr safninu í Broddanesi og þeim komið fyrir á sérstöku borði, þar sem endurnýjað er á vikufresti. Loks eru keyptar inn á safnið allar vinsælustu bækur sem gefnar eru út hverju sinni. Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi og fyrir aðeins kr. 2.900 á ári er hægt að fá lánaðan ótakmarkaðann fjölda bóka.