27/04/2024

Hættu að hanga!

Síðasta sunnudag hófst átaksverkefni á vegum UMFÍ sem ber heitið Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! Verkefnið stendur yfir frá 5. júní til 15. september 2011. Það fór fyrst af stað á síðasta ári og voru undirtektir góðar. Megintilgangur þess er að hvetja einstaklinga, fyrirtæki, fjölskyldur og hópa til að hreyfa sig og stunda heilbrigða lifnaðarhætti. Þátttakendur skrá inn þá hreyfingu sem þeir stunda inn á vefinn www.ganga.is. Sú hreyfing sem hægt er að skrá er að hjóla minnst 5 km, synda 500 m, ganga eða skokka 3 km og ganga á fjöll.

Öllum er heimil þátttaka óháð aldri en hægt er að velja milli þátttöku í einstaklingskeppni, hópakeppni eða fyrirtækjakeppni. Fyrir að hreyfa sig í 30 skipti fá þátttakendur bronsmerki, silfurmerki fyrir 60 skipti og gullmerki fyrir 80 skipti. Einnig eiga þátttakendur kost á öðrum veglegum verðlaunum fyrir þátttöku sína. 

Vefurinn strandir.saudfjarsetur.is hvetur alla Strandamenn til að taka þátt í verkefninu í sumar og skrá árangur sinn á www.ganga.is! Hættum að hanga í sumar.