18/04/2024

Golfmót á Skeljavíkurvelli 17. júní

Þann 17. júní verður haldið golfmót á Skeljavíkurvelli og hefst það kl. 16:35. Mótið er með því fyrirkomulagi að vanur og óvanur spila saman í liði, svokallaður betribolti. Þá slá báðir liðsmenn slá boltann frá þeim stað sem þeir telja vera í betri stöðu. Jafnframt verður opið hús frá 15:30 í Golfskálanum og seldar verða vöfflur og kakó á 500 kr. Þáttökugjald í mótinu er  kr. 1.000.- og skráning fer fram á staðnum. Spilaðar eru 9 holur. Óvanir eru sérstaklega hvattir til að mæta og þurfa þeir ekki að vera með kylfur eða bolta.