01/05/2024

Fyrsta sérmerkta bílastæðið fyrir fatlaða á Hólmavík

Kaupfélag Hólmavíkur er aldeilis búið að gera góða hluti núna undanfarið til þess að bæta aðgengi fatlaðra og annarra að verslun sinni og veitingasölu á Hólmavík sem var sameinuð í einu húsi í vor. Síðasta vetur var sett upp sjálfvirk rennihurð að versluninni, svo fólk þarf ekki að baslast við að opna og loka hurðinni sjálft. Í framhaldi af malbikun bílastæðsins við Kaupfélagið fyrr í sumar hefur fyrsta sérmerkta bílastæðið fyrir fatlaða á Hólmavík nú litið dagsins ljós, en í dag var unnið að því að merkja bílastæði við Kaupfélagið.

bottom

frettamyndir/2011/640-merking2.jpg

Bílastæði við Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Hólmavík – ljósm. Dagrún Ósk