08/05/2024

Fyrirlestur um netfíkn


Miðvikudaginn 24. október kl. 19:30 verður haldinn fyrirlestur í Félagsheimilinu á Hólmavík um netfíkn. Sálfræðingurinn Eyjólfur Örn Jónsson fjallar í fyrirlestrinum um hættur Internetsins, hverjir séu í hættu með að "ánetjast" notkun sinni, hver einkenni ofnotkunar eru, hvað slík notkun getur haft í för með sér og hvað foreldrar og fagfólk getur gert til að fyrirbyggja vandann og takast á við hann. Eftir fyrirlesturinn verða umræður og fyrirspurnir. Fólk á öllum aldri er hvatt til að mæta á þennan fróðlega fyrirlestur sem veitir innsýn í málefni sem kemur okkur öllum við og er vaxandi vandamál á Íslandi – og Ströndum.

Frítt er inn á fyrirlesturinn og allir áhugasamir eru velkomnir á hann. Það er tómstundafulltrúi Strandabyggðar sem stendur fyrir fyrirlestrinum, en styrktaraðilar eru Strandabyggð, Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík og Héraðssamband Strandamanna.