02/05/2024

Byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga


Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur úthlutað 6.707 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2012-2013 til 32 sveitarfélaga. Í þeim fengu 49 byggðarlög hlutdeild í kvótanum. Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2002-2003 til fiskveiðiársins 2011-2012. Strandabyggð fær 140 tonna byggðakvóta, Kaldrananeshreppur 90 tonn og Árneshreppur 15 tonn.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá fjögur byggðarlög þá úthlutun.

Hér má nálgast yfirlit um byggðakvótann og forsendur hans í Exel-skjali á vef ráðuneytisins.