05/05/2024

Fjöldi umsókna um störf á Ströndum

Í frétt á heimasíðu Strandabyggðar – www.strandabyggd.is – kemur fram að mikill áhugi virðist vera á þátttöku í lífi og starfi í Strandabyggð. Alls sóttu 10 einstaklingar um nýja stöðu félagsmálastjóra á Ströndum og Reykhólahreppi sem auglýst var nýverið, 7 konur og 3 karlar. Þá bárust 6 umsóknir um nýja stöðu tómstundafulltrúa Strandabyggðar en 3 konur og 3 karlar
sóttu um starfið. Verið er að vinna úr umsóknum og stefnt er að því að ganga frá ráðningum fyrir jól. Umsóknarfrestur um starf leikskólastjóra á leikskólanum Lækjarbrekku á Hólmavík rennur út á miðnætti í kvöld og er hægt að senda umsóknir á holmavik@holmavik.is.