02/05/2024

Fjallaferðir í jólapakkann

Fyrir skömmu kom út á vegum Félags Árneshreppsbúa myndin “Fjallaferðir í Árnesheppi á Ströndum” eftir Pálma Guðmundsson frá Bæ í Trékyllisvík. Myndin er 117 mínútur að lengd og fæst bæði á myndbandi og DVD-diski. Hún skiptist niður í fimmtán efnisþætti og eru flestir um gönguleiðir í nyrsta hreppi Stranda. Skemmst er frá að segja að viðtökur hafa verið afar góðar, en myndin er til sölu hjá umboðsmönnum félagsins víða um land. Nú þegar líða tekur að jólum og menn huga að jólagjöfum er rétt að minna á að myndin er ekki einungis nauðsynleg í pakka hvers Strandamanns, hvar sem hann býr á landinu, heldur einnig sannkallaður gullmoli í safn alls útivistarfólks.

Með myndinni er m.a. hægt að hefja skipulagningu holls og góðs sumarleyfis á næsta ári, í fegurð og friðsæld Stranda, þar sem nóg er af hreinu lofti, lítt spilltri náttúru og einstöku dýralífi svo ekki sé minnst á hið góða mannlíf sem þar þrífst. Pálmi Guðmundsson er höfundur myndefnis og leiðangursstjóri í ferðum myndarinnar, en hann þekkir hverja þúfu og hvern hól í Árneshreppi. Vandað var mjög til vinnslu myndarinnar og eru m.a. kort af öllum gönguleiðum í myndinni sem kostar einungis 3.500 krónur.

“Fjallaferðir í Árnesheppi á Ströndum” er til sölu hjá stjórnarmönnum Félags Árneshreppsbúa og hjá umboðsmönnum víðsvegar um landið, en þeim fjölgar stöðugt. Nýverið bættust Hárskerastofa Lýðs í Lágmúla 7 í Reykjavík og veitingastaðurinn Kænan að Óseyrarbraut 2 í Hafnarfirði í þéttriðið net umboðsmanna Félags Árneshreppsbúa.

Ekki hika nú á jólaföstunni; gefðu holla og góða jólagjöf. Til þess þarf eingöngu að snúa sér til einhvers í þeirri vösku sveit sem talin er upp hér að neðan og verður þeim bæði ljúft og skylt að koma þér í kynni við “Fjallaferðir í Árnesheppi á Ströndum”. Pöntunum er jafnvel keyrt heim að dyrum sé þess nokkur kostur.
 
Umboðsmenn:

Hárskerastofa Lýðs, Lágmúla 7, Reykjavík, s: 588 2087.
Kænan, veitingastaður, Óseyrarbraut  2, Hafnarfirði, s: 565 1550.   
Pálmi Guðmundsson, Blikahólum 2, Reykjavík, s: 557 6229.
Páll Jónsson, Vesturgötu 93, Akranesi, s: 431 1790.
Unnur Pálína Guðmundsdóttir, Fagurhólstúni 2, Grundarfirði, s: 438 6656.
Bjarnveig Samúelsdóttir, Völusteinsstræti 1, Bolungarvík, s: 456 7317.
Ólafur Gísli Thorarensen, Aðalstræti 15, Ísafirði, s: 456 3138, 866 4801.
Margrét Jónsdóttir, Bergistanga, Norðurfirði, Árneshreppi, s: 451 4000.
Júlíana Ágústsdóttir, Vitabraut 13, Hólmavík, s: 451 3390.
Óskar Torfason, Holtagötu 5, Drangsnesi, s: 451 3296.
Linda Björk Guðmundsdóttir, Smárahlíð 8c, 603 Akureyri, s: 462 4009.
Sigurvina Samúelsdóttir, Heiðvangi 4, Hellu, s: 487 5870.
Guðjón Ólafsson, Reynihvammi 10, Egilsstöðum, s: 699 5512 / 471 2103 – gutti@strik.is.
 
Stjórnarmenn í Félagi Árneshreppsbúa eru:

Snorri Torfason, formaður, Þingási 24, 110 Reykjavík, s: 660 3531 – snorri@la.is.
Gíslína Gunnsteinsdóttir, gjaldkeri, Þingási 34, 110 Reykjavík, s: 567 2678 – gislina@penninn.is.
Böðvar Guðmundsson, Brekkuhlíð 7, 220 Hafnarfirði, – bog@isholf.is.
Hrönn Valdimarsdóttir, Brekkuhlíð 7, 220 Hafnarfirði, – bog@isholf.is.
Ívar Benediktsson, Lágholti 11, 270 Mosfellsbæ, s: 669 1300 – iben@mbl.is.
Kristmundur Kristmundsson, Jakaseli 27, 109 Reykjavík, s: 898 2441 – stalver@internet.is.
Sigríður Halla Lýðsdóttir, Öldugötu 46, 220 Hafnarfirði, s: 555 4997.
Þorgeir Benediktsson, Sílakvísl 2, 110 Reykjavík, s: 567 2175.