29/04/2024

Félagsvist í Sævangi

felags3

Félagsvist verður haldin í Sævangi við Steingrímsfjörð laugardaginn 3. janúar 2015 og hefst spilamennskan kl. 20:00. Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir spilakvöldinu og er aðgangseyrir 1.200.- fyrir 13 ára og eldri en 600.- fyrir yngri og eru veitingar innifaldar í verðinu. Á milli jóla og nýjárs var haldin spilavist í Tjarnarlundi í Saurbæ og var fjölmenni þar, spilað á 12 borðum. Rétt tæplega helmingur spilaranna þar kom af Ströndum og eru meðfylgjandi myndir frá spilakvöldinu þar.

felags1 felags2 felags4

Spilakvöld í Tjarnarlundi – ljósm. Jón Jónsson