28/04/2024

Fækkun mest í dreifbýlinu

Mesta fólksfækkunin á árinu 2005 er í dreifbýlinu á Ströndum, en þar hefur fækkað um 16 á árinu 2005. Á Drangsnesi hefur fækkað um 7 íbúa og á Hólmavík um 5. Á Borðeyri hefur hins vegar fjölgað um 3 íbúa á milli ára, eins og sjá má í töflunni hér að neðan. Ef litið er til síðustu fjögurra ára eða sem svarar eins kjörtímabils sveitarstjórna hefur íbúum á Ströndum hefur fækkað úr 841 í 767 eða um 74 einstaklinga.

Tafla um íbúafjölda milli áranna 2004 og 2005:

Íbúafjöldi

2005

2004

Breyting

Drangsnes

76

83

-7

Hólmavík

380

385

-5

Borðeyri

32

29

3

Dreifbýli

279

295

-16

Samtals

767

792

-25