27/04/2024

Jarðskjálfti út af Djúpavík

Samkvæmt upplýsingum frá eðlisfræðisviði Veðurstofu Íslands varð jarðskjálfti í vestur af Djúpavík í morgun kl. 07:14 að stærð 3 á Richter. Upptök jarðskjálftans voru um 3 km vestur af Djúpavík. Annar minni skjálfti, 2.7 á Richter, varð á sömu slóðum kl. 07:08. Ekki er vitað til þess að skjálftarnir hafi fundist en um innflekaskjálfta er að ræða. Ekki er gert ráð fyrir frekari skjálftavirkni þarna. Samkvæmt óyfirförnum frumupplýsingum úr sjálfvirkri úrvinnslu sem er að finna á vef Veðurstofunnar urðu einnig jarðskjálftar á svipuðum slóðum á tíunda tímanum í morgun og sá stærsti upp á 3,5 á Richter. Á myndinni hér að neðan er hægt að sjá nákvæma staðsetningu jarðskjálftanna í morgun.

Dagsetning Tími     Breidd Lengd Dýpi       Stærð Gæði   Staður  
2006-09-08 09:42:16,6 65,926 -21,598 12,4 3,5 90,01 2,6 km SV af Djúpavík

2006-09-08 09:35:27,3 65,918 -21,549 7,0 3,2 82,72 2,9 km S af Djúpavík

2006-09-08 07:14:28,9 65,925 -21,626 11,4 3,2 90,01 3,6 km SV af Djúpavík

2006-09-08 07:08:13,5 65,921 -21,591 7,4 3,0 82,67 2,9 km SSV af Djúpavík

Upplýsingarnar eru úr skjálftalista Veðurstofu Íslands.


Mynd.: Veðurstofa Íslands