02/05/2024

Dorgveiðikeppni á Hólmavík

Allur landaður afli fer beint á viktinaNú í morgun var haldin dorgveiðikeppni á bryggjunni á Hólmavík og voru þar margir þátttakendur í góða veðrinu, 13 stiga hiti er á Hólmavík og sólin glottir bak við ský. Kjörið veður til skútusiglinga. Ekki var annað að sjá en aflabrögð væru með besta móti í veiðikeppninni og var hverjum fiskinum á fætur öðrum landað á meðan ljósmyndari strandir.saudfjarsetur.is staldraði við. Það er Björgunarsveitin Dagrenning sem hefur veg og vanda af hátíðahöldum sjómannadagshelgina á Hólmavík.

Jakob

Maríus Þorri og Selma búin að landa

Jakob Ingi með góðan afla

atburdir/2007/580-veidikeppni1.jpg

Teddi hinn kátasti með fyrsta fisk dagsins, vænan marhnút

Ljósm. Jón Jónsson