03/05/2024

Yfirlit yfir veðrið í maí

Jón Guðbjörn Guðjónsson veðurathugunarmaður í Árneshreppi hefur tekið saman yfirlit yfir veðrið í maí 2007 frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík. Maí var mjög kaldur í heildina og gróður var rétt að taka við sér í Árnshreppi í mánaðarlok. Úrkoman mældist 47 mm og er það í meðallagi. Mestur hiti var 29. maí, þá 12 stig. Mest frost var 20. maí, þá -1,7 stig. Mesta snjódýpt var þann 25þ og var 3 cm. Jörð var alhvít í 1 dag og flekkótt í 7daga og þá auð í 23 daga. Sjóveður var slæmt fyrir smærri báta, talsverður eða allmikill sjór þessa daga: 6.-7. maí, 11.-13., 17.-19. og 24.-26. maí.

1.-2.: Suðaustan gola eða stinningsgola, lítils háttar rigning, hiti 3 til 8 stig.
3.-19.: Norðaustan og norðan, gola, kaldi eða stinningskaldi, slydda, snjókoma eða él, hiti frá 4 stigum niðrí 2 stiga frost.
20.-21.: Suðaustan og sunnan, stinningsgola, smá rigning eða skúrir, aðeins hlýrra en verið hefur eða hiti 4 til 7 stig yfir daginn.
22.-23.: Vestlæg vindátt stinningsgola, skúrir eða slydduél, hiti 2 til 5 stig. Snérist til norðanáttar um kvöldið og kólnar í veðri.
24.-26.:Norðan allhvass síðan kaldi, slydda, snjókoma eða él, hiti 0 til 2 stig.
27.: Norðanáttin gengur niður, gola, úrkomulaust, hiti 0 til 4 stig, heldur hlýnandi.
28.-29.: Suðlægar vindáttir, gola, þurrt, hiti 4 til 12 stig.
30.-31.: Norðan og norðvestan, gola, stinningsgola, þokuloft og súldarvottur, heldur kaldara, hiti 3 til 7 stig.

Tekið saman af Jóni G Guðjónssyni veðurathugunarmanni.