28/03/2024

Djúpavíkurdagar 18.–20. ágúst

Hátíðahöldin Djúpavíkurdagar fara fram næstu helgi, dagana 18.-20. ágúst, en það eru hótelrekendur á Djúpavík sem standa fyrir þeim. Að venju er ýmislegt á dagskránni á Djúpavíkurdögum – veislumáltíð, kaffihlaðborð, trúbador, kövldvaka, varðeldur, skoðunarferð um verksmiðjuna og þrautabraut fyrir börnin er á meðal þess sem verður til skemmtunar. Dagskráin er birt hér að neðan:

Föstudagurinn 18. ágúst

kl. 21:00 – Dagskráin hefst á kvöldvöku í borðsal hótelsins. Kaffi verður í boði hússins og er öllum frjálst að koma með hljóðfæri og við gerum þetta að ánægjulegu kvöldi. Leynigestur mætir á svæðið og heldur uppi fjörinu.

Laugardagurinn 19. ágúst

kl. 16:00 – Á laugardeginum verður farið í skoðunarferð um gömlu síldarverksmiðjuna og farið verður í gegnum sögu hennar í máli og myndum.

kl. 17:30 – Heiðri “Djúpvíkingsins” verður haldið uppi og fer keppnin fram nú að öðru sinni en mjög góð þátttaka var í fyrra. Þetta er þrautabraut fyrir yngri kynslóðina.

kl. 19:00 – veislumatur á hótelinu, einstakt tækifæri til að fá 4ra rétta matseðil á frábæru verði. Trúbadorinn Bjarni Ómar skemmtir gestum á meðan á matnum stendur og fram eftir kvöldi.

Matseðill:
Forréttur: Fiskipaté m/ balsamicsósu
Aðalréttir: Fylltur svínahnakki með sveskjum og eplum og jurtakryddað lambalæri (kryddað með jurtum Víkurinnar). Meðlæti: piparsósa, parísarkartöflur, grænmeti og rauðkál
Eftirréttur: Djúpavíkurdraumur
Verð kr. 5000 og hálft gjald er fyrir börn 6-12 ára en frítt fyrir yngri en 6 ára.

kl. 00:00 – Varðeldur verður tendraður á sama stað og venjulega.

Sunnudagurinn 20. ágúst

kl 14:00 – Dagskránni lýkur svo á kaffihlaðborði sem er síðasta hlaðborð sumarsins og verða því einskonar “töðugjöld”.

Þess er vert að geta að hægt er að tjalda í kring um Djúpavík með góðu móti og almenningssalerni er í þorpinu. Borðapantanir eru í síma 451-4037 til 18. ágúst.