Börnin sem eru í dagvistun á Drangsnesi voru í gönguferð á dögunum, þegar fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is – Óskar Torfason – rakst á þau. Voru þau vel búin í nýjum vestum frá tryggingarfélagi nokkru sem gaf þennan nauðsynlega öryggisbúnað. Mættu fullorðnir taka þau sér til fyrirmyndar og veitir ekki af þar sem erfiðlega gengur að halda ljósum á götuljósunum í skammdeginu. Hafa bæði Leikskólinn á Hólmavík og Dagvistunin á Drangsnesi fengið slík vesti að gjöf nú í haust.
![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/580-dagvistun2.jpg)
![](wp-content/uploads/frettamyndir/2005/580-dagvistun1.jpg)