29/04/2024

Barnamót HSS í frjálsum íþróttum

640-ungl16
Barnamót Héraðssambands Strandamanna (HSS) verður haldið sunnudaginn 18. ágúst kl. 13:00 á félagssvæði Ungmennafélagsins Leifs heppna á íþróttavellinum í Árnesi í Trékyllisvík. Barnamótið er ætlað fyrir keppendur sem eru 12 ára og yngri. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku á mótinu og grillaðar verða pylsur fyrir keppendur og mótsgesti í boði Kaupfélags Steingrímsfjarðar.

Keppnisgreinar eru eftirfarandi:

Pollar og pæjur 8 ára og yngri – 60m hlaup, langstökk og boltakast.

Hnokkar og hnátur 9 -10 ára – 60m hlaup, langstökk og boltakast. 

Strákar og stelpur 11-12 ára – 60m hlaup, langstökk, hástökk, spjótkast og kúluvarp. 

Forráðamenn félaganna skrái keppendur í mótaforriti FRÍ, fyrir kl. 18 á
laugardag.