
Að Hólmadrangi ehf standa Kaupfélag Steingrímsfjarðar og FISK Seafood hf á Sauðárkróki með jafnan eignarhlut og sátu fulltrúar úr stjórnum þessara félaga aðalfundinn. Hlutfall eiginfjár í efnahag í lok árs nam rúmum 48% og veltufjárhlutfall var 1,24. Fundarmenn lýstu yfir ánægju með jákvæðan rekstur félagsins í erfiðu rekstrarumhverfi og það góða samstarf sem náðst hefur milli eignaraðila um að skapa traustan grundvöll um áframhaldandi rekstur rækjuvinnslunnar á staðnum. Þá voru starfsfólki færðar sérstakar þakkir fyrir þeirra störf og þátttöku í þessum árangri.