01/05/2024

Æðarungar komnir á flot

Fyrstu æðarungarnir eru komnir á flot á Ströndum þetta vorið, en á Bæjarvíkina á Kirkjubóli voru komnir ungar á flot á Hvítasunnudag, þann 4. júní. Á sömu vík sáust fyrst ungar síðasta dag maímánaðar í fyrra. Flestar æðarkollurnar í Orrustutanganum sem félagsheimilið Sævangur stendur á liggja þó enn á eggjum sínum og eru makindalegar þegar sólin skín á þær. Æðarfuglinn er um það bil þrjár vikur að unga út.

natturumyndir/580-teistur2.jpg

Teisturnar eru búnar að verpa

bottom

1

Æðarkollurnar liggja flestar á í rólegheitum

Tjaldurinn verpir þremur eggjum í ár – ljósm. Jón Jónsson