03/05/2024

FRESTAÐ: Svavar Knútur á Jólamölinni

svavarknutur

Þrettándu tónleikarnir á Mölinni eru jólatónleikar Malarinnar sem verða haldnir í þriðja sinn þriðjudagskvöldið 16. desember á Malarkaffi. Að þessu sinni mun söngvaskáldið geðþekka Svavar Knútur heiðra Strandamenn og -konur með nærveru sinni og flytja jólalög, eigin og annarra í bland við annað efni. Flateyringinn Svavar Knút Kristinsson þarf varla að kynna fyrir fólki. Hann hefur á undanförnum árum unnið sér fastan sess í hjörtum landsmanna með einlægri og glaðhlakkalegri framkomu, einstakri söngrödd og vel smíðaðri tónlist. Á síðustu árum hefur hann sent frá sér þrjár sólóplötur auk jólaplötunnar „Eitthvað fallegt“ sem hann gerði í félagið við Kristjönu Stefánsdóttur og Ragnheiði Gröndal. Svavar Knútur hefur vanið komur sínar á Strandir um nokkurt skeið og m.a. haldið tónleika á Hólmavík og í Djúpuvík.

 Á undan Svavari mun Borko bregða sér í jólagírinn og flytja nokkur lög venju samkvæmt. Tónleikarnir hefjast kl.21:30 en húsið opnar hálftíma fyrr. Miðaverð er 2000 kr. Meðfylgjandi er mynd af Svavar Knúti tekin í Djúpuvík á Ströndum. Mölin er styrkt af Menningarráði Vestfjarða

Tónleikaröðin Mölin hóf göngu sína haustið 2012. Tónleikar Svavars Knúts eru 13. tónleikarnir í röðinni en aðrir tónleikar hafa verið sem hér segir: 

Mölin #1 – Prins Póló

Mölin #2 – Jónas Sigurðsson og Ómar Guðjónsson

Mölin #3 – Sigurður Guðmundsson

Mölin #4 – Ylja

Mölin #5 – Snorri Helgason

Mölin #6 – Benni Hemm Hemm

Mölin #7 – Lay Low

Mölin #8 – Sigríður Thorlacius

Mölin #9 – Skúli mennski

Mölin #10 – Hljómsveitin Eva

Mölin #11 – Adhd

Mölin #12 – Pétur Ben