18/04/2024

Litlu-jólin í Árnesi

Í gær hélt Kvenfélag Árneshrepps og nemendur ásamt starfsfólki Finnbogastaðaskóla Litlu-jólin í Félagsheimilinu í Árnesi. Dagskráin hófst með borðhaldi, hangiket og laufabrauð voru á matseðlinum og allt meðlæti sem því fylgir. Síðan voru nemendur og starfsfólk skólans með skemmtidagskrá, meðal efnis var jólasaga, söngur, leikrit og listdans.

Síðan var gengið í kringum jólatré og ekki leið á löngu að tveir jólasveinar komu í heimsókn við mikinn fögnuð yngsta fólksins, þeir félagar Gluggagægir og Kjötkrókur.

Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is og eigandi fréttavefjarins www.litlihjalli.it.is – Jón Guðbjörn Guðjónsson í Litlu-Ávík – var á staðnum og tók þessar myndir.