27/04/2024

Haustþing HSS á Drangsnesi 25. okt.


Haustfundur Héraðssambands Strandamanna (HSS) verður haldinn á Malarkaffi á Drangsnesi fimmtudaginn 25. október næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 19:30. Á honum verður fjallað um íþróttastarfið sem fram fór á vegum HSS og aðildarfélaga þess síðasta sumar, hvað tókst vel og hvað má bæta. Einnig verður fjallað um mótshald og starfsemi á komandi vetri. Allir áhugasamir um íþróttir á Ströndum og alhliða starfsemi ungmennafélaganna og HSS eru innilega velkomnir á fundinn. Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffisopinn verður að sjálfsögðu ekki langt undan. Þetta kemur fram á vef HSS – www.123.is/hss.