28/04/2024

Umhverfisþing á Hólmavík

645-amstu3

Sveitarfélagið Strandabyggð heldur Umhverfisþing á Hólmavík, miðvikudaginn 11. maí næstkomandi. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. Á þinginu kynnir Lína Björg Tryggvadóttir verkefnisstjóri hjá Fjórðungssambandi Vestfjarða umhverfisvottunarferli Earth Check sem öll sveitarfélög á Vestfjörðum taka þátt í. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá UMÍS fjallar um verkefnið Plastpokalausir Vestfirðir sem verið er að hleypa af stokkunum og framkvæmdastjóri Orkuseturs, Sigurður Ingi Friðleifsson, talar um orkusparnað frá ýmsum hliðum. Þá mun Grunnskólinn á Hólmavík halda sinn árlega umhverfisdag í tengslum við þingið og bjóða upp á lítið leikrit, ljóðalestur, kynningu á grænfánastarfi skólans og bjóða upp á veitingar.

Einnig mun Skógræktarfélag Standamanna, Sorpsamlag Strandamanna, Leikskólinn Lækjarbrekka og Náttúrustofa Vestfjarða koma að dagskránni. Þingið er öllum opið ungum sem öldnum og hægt er að koma á einstaka fyrirlestra eða dagskrárliði eða njóta dagskrárinnar í heild sinni.

Dagskrá

Kl. 15:30 Opnun umhverfisþings
Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar setur þingið.

Kl. 15:35 Sorpsamlag Strandasýslu
Hvað hefur áunnist við sorpflokkun hjá Sorpsamlagi Strandasýslu? Einar Indriðason framkvæmdastjóri Sorpsamlags Strandasýslu. (10 mín)

Kl. 15:45 Ruslaskrímslið
Lítill leikþáttur, 3. og 4. bekkur Grunnskólans á Hólmavík. (10 mín)

Kl. 15:55 Flagð í fóstur
Kynning á samstarfs- og tilraunaverkefni Náttúrustofu Vestfjarða, Skógræktar Strandasýslu og Strandabyggðar um átak gegn lúpínu innan bæjarmarka Hólmavíkur. (10 mín)

16:05 Grænfánaskóli  – 10 ára vinna
Unglingadeild Grunnskólans á Hólmavík kynnir Grænfánastarfið síðastliðin 10 ár í máli, leik og myndum. (10 mín)

16:15 Skógræktarfélag Strandasýslu
Hallfríður Sigurðardóttir/Arnlín Óladóttir. (10 mín)

16:25 Grænfáninn á Leikskólann
Hvaða þýðingu hefur það? Alma Benjamínsdóttir, skólastjóri Leikskólans Lækjarbrekku. (5 mín)

16:30 Kaffihlé
Nemendur úr Grunnskólanum á Hólmavík bjóða nýstárlegar eldbakaðar veitingar við tjaldsvæðið. Umhverfissöngur skólans fluttur. (30 mín)

17:00 Umhverfisvottun Vestfjarða
Kynning á verkefninu. Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnisstjóri Fjórðungssambands Vestfjarða. (20 mín)

17: 20 Plastpokalausir Vestfirðir
Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur UMÍS (20 mín)

17:40 Tuðran
Kynning á verðlaunasamkeppni um gerð fjölnota innkaupapoka úr endurunnum efnum. Ásta Þórisdóttir. (5 mín)

17:45 Orkusparnaður
Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs. (40 mín)

18:25 Umhverfisljóð
Flutt verða nokkur ljóð í tilefni útgáfu á umhverfisljóðabók nemenda í unglingadeild Grunnskólans. (5 mín)

18:30 Þinglok
Andrea Kristín Jónsdóttir, sveitarstjóri slítur þingi. (5 mín)

Allir eru hjartanlega velkomnir.