28/03/2024

Hægt að leita til félagsþjónustu á Vestfjörðum

645-skeljaviksol1
Tilkynning

Í ljósi umfjöllunar um kynferðisbrotamál í Kastljósi undanfarna daga vilja félagsþjónustur á Vestfjörðum (Félagsþjónustan við Djúp, Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar, Félagsþjónusta Stranda- og Reykhólahrepps og Félagsþjónustan í Vestur- Barðastrandarsýslu) leggja áherslu á mikilvægi þess að þeir sem hafa orðið fyrir slíkri reynslu fái viðeigandi aðstoð og stuðning. Félagsmálastjórar á Vestfjörðum veita aðstoð í slíkum málum og þeir sem vilja eru hjartanlega velkomnir til viðtals. Jafnframt er bent á samtökin Stígamót eða Sólstafi Vestfjarða.

Félagsmálastjórar á Vestfjörðum eru:

Elsa Reimarsdóttir, félagsmálastjóri í Vesturbyggð
Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri í Bolungarvík og Súðavík
Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps
Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar