29/04/2024

Maltkviss í Tjarnarlundi

juli 232
Spurningakeppninni Maltkviss sem vera átti í Tjarnarlundi laust fyrir áramót, en varð að fresta vegna rafmagnsleysis, verður þess í stað haldin laugardagskvöldið 5. janúar kl. 20:00. Um er að ræða fjölskylduvænar spurningar þar sem tveir til þrír verða saman í liði, fer eilítið eftir aldursamsetningu liðsins. Verðið er 500 kr fyrir hvert lið. Stjórnandi verður Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Geiradal og verða verðlaun og veitingar undir væntingum flestra. Allir eru velkomnir og að taka þátt. Eingöngu er hægt að greiða með seðlum og klinki þar sem enginn posi er á staðnum.