Dagarnir eru enn að styttast og nú kl. 16:00 er farið að skyggja töluvert við Steingrímsfjörðinn. Allmargir Strandamenn eru búnir að skreyta hús sín og tendra útijólaljósin og seríurnar og setur það óneitanlega skemmtilegan svip á bæina og húsin. Sumir eru stórtækari en aðrir við skreytingarnar og við hús eitt við Hafnarbrautina á Hólmavík er nú kominn torfærujeppi upp á þak, skreyttur jólaseríu. Skreytingarnar á þessu húsi við Hafnarbraut hafa verið einna umfangsmestar og glæsilegastar á Hólmavík undanfarin ár.
Jólaljósin lýsa upp bæinn – ljósm. Jón Jónsson