26/04/2024

Villandi merkingar á Kiwanishjálmum grunnskólabarna

Neytendastofa vekur athygli á því með fréttatilkynningu að hjálmar sem 1. bekkingar í grunnskólum landsins fengu að gjöf frá Kiwanishreyfingunni á Íslandi síðastliðið vor. Hjálmarnir eru ekki ætlaðir til notkunar á skíðum og skíðabrettum. Hjálminn má eingöngu nota á reiðhjólum, hjólaskautum og hjólabrettum, þrátt fyrir að á umbúðum og hjálminum sjálfum séu merkingar sem gefa til kynna að þetta sé hjálmur sem hægt sé að nota á skíðum, reiðhjóli, hjólaskautum og hjólabrettum. 

 Það er ekki hægt að nota sama hjálminn við allar frístundir því að áverkar sem hljótast við hinar ýmsu greinar eru mismunandi og eru hjálmarnir því hannaðir með það fyrir augum. Allt er þetta gert til að verja höfuðið sem best.  Skíðahjálmurinn er sérstaklega djúpur og hylur allt höfuðið nema andlitið. Hann er hannaður með það fyrir augum að taka við falli á mikilli ferð og höggum af hörðum árekstrum, Kiwanishjálmurinn er ekki hannaður fyrir þetta álag. 

Neytendastofa hvetur foreldra og forráðamenn barna sem eiga viðkomandi hjálma að gæta að því að þeir séu ekki notaðir á skíðum og skíðabrettum. 

Samkvæmt upplýsingum frá Kiwanishreyfingunni hefur tilkynning verið send foreldrum og forráðamönnum skólabarna sem fengið hafa hjálmana að gjöf.