26/04/2024

Vilja efla byggð í Árneshreppi

Miðvikudaginn 17. mars verður haldinn opinn hugmyndafundur á Hilton hótelinu við Suðurlandsbraut um hvernig styrkja má byggð í Árneshreppi. Fundurinn er framhald af fundi sem skólastjórarnir Elísa Ösp Valgeirsdóttir og Elín Agla Briem héldu fyrir unga Árneshreppsbúa í félagsheimilinu í Trékyllisvík þann 27. desember sl. Að þessu sinni gefst öllum brottfluttum og öðrum áhugasömum um eflingu byggðar í hreppnum tækifæri til að koma saman og viðra hugmyndir sínar. Til dæmis verður skoðað hvernig þeir sem búa utan hreppsins geta lagt sitt af mörkum til að hlúa að byggðinni. Eru allir velunnarar Árneshrepps hvattir til að mæta en fundurinn hefst kl. 20:00.