26/04/2024

Vestfirskur 17. aldar menntamaður í Vísindaporti

Kirkjan í Selárdal við ArnarfjörðÍ Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða föstudaginn 24. október mun Gunnar Marel Hinriksson, sagnfræðingur fjalla um Pál Björnsson prófast í Selárdal, menntun hans og störf. Verður Vísindaportið sýnt í fjarfundi í Grunnskólanum á Hólmavík. "Af eftirminnilegum persónum 17. aldar hefur prófasturinn í Selárdal helst getið sér nafn fyrir framgöngu sína í galdramálum, sitjandi í afdalabrauðinu Selárdal yst í Arnarfirði," segir í kynningunni. Í erindinu er reynt að endurmeta starf Páls og rætt um hverjir möguleikar hans voru heim kominn með hæstu meðmæli frá Hafnarháskóla, hvort Selárdalur hafi í raun verið afdalabrauð og hvernig Páll vann að því að koma ritverkum sínum á framfæri síðar á ævinni.

Erindið var áður flutt á ráðstefnunni Menntun og menning í Skálholtsstifti 1620-1730 sem haldin var í Skálholtsskóla dagana 17.-19. október 2008.

Gunnar Marel Hinriksson lauk B.A.-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 2007 og hefur verið skiptinemi við háskólann í Tübingen í Þýskalandi og Kaupmannahafnarháskóla. Gunnar hefur birt greinar um stríðshjálparskattheimtu 1681, byggðasögu Kópavogs á 17. og 18. öld og kvikfjártalið 1703. Hann vinnur á Þjóðskjalasafni Íslands og leggur stund á meistaranám í sagnfræði við HÍ auk þess sem hann situr í stjórn Sögufélags Árnesinga.

Vísindaportið er óformlegur umræðutími í hádeginu á föstudögum og hefst stundvíslega kl. 12.10. Þar er fjallað í stuttu máli, 20-30 mínútur, um yfirstandandi rannsóknir eða rannsóknir sem er lokið og svo er orðið gefið laust. Vísindaportið fer fram í kaffisal Háskólaseturs Vestfjarða og í fjarfundi á Hólmavík.