10/05/2024

Veðrið í Árneshreppi í febrúar 2008

Ljósm. Jón G.G.Í mánaðarlegu yfirlit yfir veðrið frá veðurstöðinni í Litlu-Ávík sem Jón G. Guðjónsson tekur saman kemur fram að yfirleitt var talsvert frost í febrúar, en frá 14.-19. gerði vetrarblota og talsverð hlýindi voru þessa daga. Rok eða stormur var 8.-10. febrúar og þann 12. Vindur náði 12 vindstigum þann 10. feb., í kviðum. Úrkoman mældist 69,8 mm í mánuðinum, en úrkomulausir dagar voru 2. Mestur hiti var þann 19. þá 9,8 stig, en mest frost var þann 1. þá -9 stig.

Yfirlit eftir dögum

1.: Norðvestan kaldi, él, frost 7 niðrí 9 stig.
2.-4.: Norðan og norðaustan stinningskaldi, él, snjókoma um kvöldið þann 4., frost frá 8 stig upp í 0 stig.
5.-6.: Suðvestan stinníngsgola eða kaldi, smá él og skafrenningur, frost frá 0 niðrí 4 stig.
7.: Austlægur gola í fyrstu með snjókomu,síðan suðvestan hvassviðri eða stormur með dimmum éljum og miklum skafrenningi, frost 0 og niðrí 4 stig.
8.: Sunnan og suðaustan stormur eða rok, fyrst með éljum og síðan rigningu, frost í fyrstu en síðan hita upp í 5 stig.
9.: Sunnan og suðvestan, allhvass í fyrstu, síðan kaldi, snjóél, hiti frá 2 stigum og niðrí 3 stiga frost.
10.: Suðvestan stormur eða rok, vindhraði yfir 12 vindstig í kviðum, mjög dimm él og skafrenningur, hiti 1 til 2 stig.
11.: Suðvestan, kaldi í fyrstu, en allhvast og hvassviðri um kvöldið, dimm él og skafrenningur, hiti 2 stig niðrí 3 stiga frost.
12.: Suðvestan stormur fram yfir hádegi, síðan kaldi, dimm él og skafrenningur, frost frá 2 stigum niðrí 5 stig.
13.: Breytileg vindátt, gola, jafnvel logn, smá snjókoma og slydda um kvöldið, hiti um 0 stigið.
14.-19.: Suðvestan eða suðlægar vindáttir, oftast kaldi, en allhvass um tíma 18. og 19., rigning eða skúrir, hiti 2 upp í 9 stig. Snarkólnaði seinnipart 19.
20.: Suðvestan síðan norðvestan, stinníngskaldi, él, síðan snjókoma, frost 0 til 2 stig.
21.-24.: Mest suðvestlægar áttir, andvari upp í stinníngsgolu, él, frost frá 2 stigum niðrí 8 stig.
25.-27.: Norðaustan stinníngskaldi eða allhvass, snjókoma eða él, frost 1 til 3 stig.
28.: Austan kaldi í fyrstu og snjókoma, síðan kul og bjartviðri, frost 3 til 7 stig.
29.: Austan og norðaustan kaldi síðan allhvass, él og skafrenningur, síðan norðan hvassviðri og mikil snjókoma um kvöldið og nóttina, frost 1 til 7 stig.

Jörð var talin alhvít í 23 daga.
Jörð var talin flekkótt í 6 daga.
Auð jörð því  í 0 daga.
Mesta snjódýpt mældist dagana 8., 28. og 29. febrúar, þá 35 cm.
Ekkert  sjóveður 1.-12., en sæmilegt frá 13.-24.,slæmt í sjóinn 25.-27., sæmilegt 28. og ekkert sjóveður 29., hlaupársdag.

Tekið saman af Jóni G Guðjónssyni veðurathugunarmanni í Litlu-Ávík.