29/04/2024

Úrskurður um vegagerð um Teigsskóg ógiltur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð umhverfisráðherra frá því í janúar 2007 þar sem fallist var á svonefnda leið B í öðrum áfanga Vestfjarðavegar frá Bjarkarlundi til Eyri í Reykhólahreppi. Þetta kemur fram á mbl.is, en fréttin öll er undir þessum tengli, en dóminn sjálfan og rökstuðning má finna undir þessum tengli. Nokkrir landeigendur á svæðinu, Náttúruverndarsamtök Íslands og Fuglaverndarfélag Íslands höfðuðu málið og kröfðust ógildingar.

Í frétt mbl.is segir ennfremur:

"Skipulagsstofnun lagðist árið 2006 gegn því, að Vestfjarðavegur yrði lagður samkvæmt tillögu B á leiðinni frá Bjarkalundi til Eyrar. Nýja veginum er ætlað að bæta samgöngur annars vegar innar Reykhólahrepps og hins vegar frá Hringvegi til og frá V-Barðastrandasýslu og norðanverða Vestfirði.

Jónína Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, felldi hins vegar úrskurð Skipulagsstofnunar úr gildi og féllst á tillögu Vegagerðarinnar um að fara með veginn um Teigsskóg. Landeigendur og náttúruverndarfélög töldu að slík vegagerð myndi hafa í för með gríðarleg óafturkræf umhverfisspjöll í nær ósnortnu umhverfi og höfðuðu því mál til að fá úrskurð ráðherra ógildan.

Héraðsdómur tók undir þá málsástæðu, að brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga þar sem að í matsferlinu hafi ekki farið fram mat á líklegum umhverfisáhrifum þverunar Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Óvissa ríki því um líkleg áhrif þverunar Djúpafjarðar og Gufufjarðar á gróður á töngum og í botni fjarðanna.
Segir dómurinn að  þar sem fullnægjandi upplýsingar um áhrif þverunar fjarðanna á umhverfið hafi ekki legið fyrir þegar ráðherra kvað upp úrskurð sinn, hafi honum borið að láta rannsaka þau áhrif á fullnægjandi hátt."